GRUNNSKÓLAR
Fátt jafnast á við gleðina þegar jólasveinarnir birtast í skólanum! Við bjóðum upp á skemmtilegar og hjartahlýjar jólasveinaheimsóknir sem henta einstaklega vel fyrir grunnskóla.
Við bjóðum upp á fjölbreyttar heimsóknir sem henta grunnskólum af öllum stærðum og gerðum, frá stuttum heimsóknum í bekki til stórra samverustunda fyrir allan grunnskólann. Jólasveinarnir okkar státa af langri reynslu af vinnu með börnum og starfa margir með börnum allan ársins hring. Því leggjum við áherslu á að passa sérstaklega vel upp á þau allra yngstu, að galsinn verði þeim ekki um of svo þau geti líka fengið að njóta.
Jólasveinarnir okkar mæta glaðbeittir með kassagítarinn og leiða börnin í sameiginlegan söng. Stundum laumum við inn nokkrum töfrabrögðum eða öðru sprelli sem hentar börnunum vel. Við tryggjum að börnin hlæji, njóti stundarinnar og auðvitað má treysta á að gleðin sé í hávegum höfð!
Við leggjum okkur fram við að skapa eftirminnilega upplifun:
✨ Oft byrjar ævintýri jólasveinanna úti á leikvelli þar sem börnin sjá sveinana birtast áður en þeir koma askvaðandi inn
✨ Við höfum jafnvel komið inn um glugga, til að gera minninguna enn eftirminnilegri
✨ Að heimsókn lokinni dreifum við gjöfum sé þess óskað. Annað hvort afhendum við sjálfir eða hjálpum til við úthlutun
Skemmtileg og fjölbreytt jólasýning fyrir flest grunnskólabörn!
Askasleikir kemur í heimsókn með fyndna og skemmtilega töfrasýningu sem fangar athygli yngstu barnanna frá upphafi til enda. Sýningin er um 50 mínútur að lengd og samanstendur af skemmtilegum töfrabrögðum, söng, spjalli og gleði. Börnin fá að taka þátt, hlæja og syngja jólalögin hástöfum með Askasleiki sem tekur með sér kassagítarinn og heldur uppi sannkallaðri jólastemningu.
Sýningin hentar yngsta- og miðstigi og er einföld í uppsetningu. Það þarf ekki mikið pláss, bara lítið svæði fyrir Askasleiki og stað fyrir börnin að sitja á. Askasleikir tekur allt til alls með sér, nokkrar töskur og gítarinn.
Lengd: 50 mínútur
Verð: 90.000 kr.



