Sagan okkar
Sagan hófst árið 1998
Saga Askasleikis hefst ekki með jólasveini, fyrirtæki eða viðskiptaáætlun. Hún hefst með trúði í sunnudagaskóla á Húsavík.
Um aldamótin tóku hjónin Fjalar Freyr Einarsson og Dögg Harðardóttir Fossberg að sér sunnudagaskólann í Húsavíkurkirkju. Þar varð Tralli trúður til og skiptust þau á að bregða sér í hlutverk hans. Sonur þeirra, Einar Aron, fæddur árið 1996, ólst því nánast frá fyrstu tíð upp við að fylgjast með foreldrum sínum koma fram, skapa persónu og gleðja börn.
Eftir að fjölskyldan flutti frá Húsavík endaði Tralli í kassa uppi á háalofti. Áhugi Einars á skemmtun hvarf hins vegar ekki. Níu ára gamall, árið 2005, ákvað hann að gerast töframaður og á næstu árum varð sviðið æ stærri hluti af lífinu.
Á háaloftinu leyndist reyndar fleira en gamall trúðsbúningur.
Í fjölskyldunni hafði lengi tíðkast að halda stórt jólaboð á Þorláksmessu fyrir börn og barnabörn afa og ömmu Einars. Þar átti jólasveinn stundum til að banka upp á. Einar man óljóst eftir einum slíkum gesti þegar hann var tveggja eða þriggja ára. Faðir hans og bræður hans höfðu skiptst á að bregða sér í hlutverkið í gegnum tíðina, þó engin nákvæm skrá sé til um hver hafi verið undir skegginu hverju sinni.
Seinna fann Einar gamalt jólasveinaskegg og húfu í fórum foreldra sinna. Skeggið var gamalt og vandað en virtist lítið sem ekkert hafa verið notað. Á þeim tíma var það bara forvitnilegur gripur úr fortíðinni. Það átti eftir að breytast.
Jólasveinn fyrir tilviljun
Árið 2020 bauðst Einari að taka að sér hlutverk sonar Grýlu í Jólaþorpinu í Hafnarfirði.
Grýla hafði þar lengi verið fastur liður og var vön að hafa jólasvein sér við hlið. Þegar sá sem venjulega lék á móti henni komst ekki eitt árið þurfti að finna annan með litlum fyrirvara. Einar var beðinn um að hlaupa í skarðið.
Hann var alveg til í að hjálpa en eitt var alveg skýrt í hans huga: hann ætlaði ekki í jólasveinabransann.
Honum þótti markaðurinn augljóslega fullmettaður. Ísland skorti hvorki jólasveina né fólk sem væri tilbúið að klæða sig upp sem slíka fyrir desembermánuð. Það mat reyndist ekki alveg rétt.
Gamla skeggið og húfan af háaloftinu voru dregin fram. Það sem vantaði var búningur og fyrsta árið var hann, vægast sagt, samsettur úr því sem tiltækt var. Rauði, hefðbundni jólasveinabúningurinn gerði sitt gagn en Einar fann strax að hann átti ekki við persónuna sem var að verða til.
Karakterinn sjálfur kom hins vegar nánast samstundis. Hann var í grunninn sá sami og hafði áður fylgt bæði Einari og foreldrum sem Tralli trúður, örlítið skrýtinn, sjálfsöruggur, leikandi og tilbúinn að grípa það sem gerðist í kringum hann.
Það eina sem vantaði var nafn.
Nokkrar hugmyndir komu upp og voru jafnóðum útilokaðar. Loks sló klukkan 15:00 og tíminn kominn til að ganga inn í Jólaþorpið. Jólasveinninn nafnlausi gekk út, örlítið stressaður en mikið meira spenntur. Mitt á milli græna herbergisins og Jólaþorpsins stóð ung stúlka sem spurði:
„Hvað heitir þú?“
Í stað þess að svara spurði hann á móti hvað hún héldi að hann héti. Eftir örstutta umhugsun tók hún til máls.
„Askasleikir,“ svaraði hún.
Það hljómaði eiginlega bara ágætlega.
Engir séríslenskir stafir sem gætu valdið vandræðum á netinu, jólasveinninn var ekki algengur og það virkaði hvorki of alvarlegt né of óhugnanlegt.
Einar samþykkti tillöguna á staðnum og staðfesti við stúlkuna að hann héti Askasleikir.
Nafnið var ákveðið.
Askasleikir verður að einhverju meira
Lénið askasleikir.is skráði Einar í janúar 2021.
Það þýddi þó ekki að stór rekstur væri kominn af stað. Vefsíðan, Facebook-síðan og Instagram fóru ekki í loftið fyrr en í nóvember sama ár. Bak við tjöldin hafði þó hafði þó ýmislegt verið gert.
Einar hafði gaman af því að skapa og sá fljótt að ein persóna gaf ákveðna möguleika en tvær persónur gáfu allt aðra.
Hann bauð vini sínum að taka þátt. Þeir ákváðu að fara í heitu pottana í Árbæjarlaug, enda viðskiptafundir bestir í sundi. Þeir ræddu saman í hálfum hljóðum eins og menn gera gjarnan þegar verið er að leggja drög að mjög alvarlegum jólasveinarekstri.
Eldri maður sem sat gegnt þeim, greinilega fastagestur, heyrði samtalið og blandaði sér í umræðuna. Hann saknaði þess að sjá jólasveina í ullarsokkum, þeir væru yfirleitt í háum stígvélum. Þetta var augljóst, auðvitað þurftu jólasveinar Askasleikis að vera í ullarsokkum.
Þörfin fyrir annan jólasvein var ekki til komin vegna þess að bókanir væru orðnar fleiri en einn maður réði við. Þetta var meðvituð ákvörðun um næsta skref.
Með tveimur sveinum var hægt að gera meira en að mæta og heilsa. Þeir gátu rætt saman um heima og geyma, kítast, strítt hvor öðrum, leikið upp aðstæður, kastað bolta á milli sín, hjálpast að og skapað smá kaos sem einn karakter gat ekki gert einn.
Þeir gátu líka staðið saman vaktir í verslunum og tekið að sér stærri verkefni.
Árið 2021 var Askasleikir því ekki lengur bara jólasveinn sem hafði óvart fengið nafn árið áður. Hann var orðinn upphaf að einhverju sem hægt var að byggja áfram.
Nútímalegir með gömlum brag
Búningarnir urðu fljótt mikilvægur hluti af jólasveinaþjónsutunni.
Fyrsta árið hafði Askasleikir verið nokkuð hefðbundinn, alrauður jólasveinn. Einar var aldrei sérlega hrifinn af því útliti. Honum fannst jólasveinninn þurfa að vera íslenskari, án þess þó að missa það sem fólk þekkir og elskar við klassíska rauða jólasveininn.
Vorið 2021 var eldgos í Geldingadölum við Fagradalsfjall sem þurfti að líta augum. Einar fór að gosstöðvunum í föðurlandi, rauðum pollabuxum frá Esso og gamalli lopapeysu sem afi hans hafði notað sem vinnupeysu við múrverk árum saman.
Hann greip jólasveinaskeggið og húfuna með sér og tróð í bakpokann.
Við eldfjallið rakst hann fyrir tilviljun á vin sinn sem var ljósmyndari. Skegginu var skellt upp, húfan fór á sinn stað og teknar voru nokkrar myndir.
Útkoman varð óvænt góð.
Gamla lopapeysan hafði eiginlega bara „slysast“ inn í myndina, en með henni fékk persónan allt annan svip. Þetta var ekki lengur amerískur jólasveinn í rauðum gervifeldsbúningi heldur eitthvað sem stóð mitt á milli hins alþekkta Santa Claus og íslensku jólasveinanna.
Hugmyndin varð að halda báðum heimum.
Rauða húfan og hvíta skeggið fengu að vera, en með þeim komu lopapeysur, ullarsokkar og prjónaðir vettlingar. Í stað hringlaga dúskanna sem sjást gjarnan á jólasveinahúfum voru notaðir tasseldúskar.
Gamli maðurinn í sundlauginni hafði sérstaklega lagt áherslu á ullarsokkana og Einar hélt fast í þá hugmynd.
Sjóaravettlingar fundust síðar notaðir í Rauða krossinum á Akureyri og varð strax hluti af búningi Askasleikis. Þeir hafa týnst oftar en tala er á, en komast alltaf til skila.
Síðar kynntist Einar hópi eldri kvenna á Höfn í Hornafirði. Þær tóku vel í hugmyndina um að prjóna sambærilega vettlinga fyrir alla meðlimi jólasveinafjölskyldunnar.
Þannig þróaðist útlitið smám saman, ekki samkvæmt fullmótaðri vörumerkjahandbók, heldur í gegnum fólk, staði og tilviljanir.
Jólasveinar Asaksleikis voru nútímalegir en með gömlum brag.
Grýla var þar fyrst
Þótt Askasleikir hafi orðið andlit starfseminnar má ekki gleyma því að Grýla kom á undan honum.
Það var vegna hennar sem Einar fór yfirhöfuð í jólasveinahlutverkið árið 2020.
Fyrstu tvö árin, 2020 og 2021, var Askasleikir einn jólasveinn með Grýlu í Jólaþorpinu í Hafnarfirði.
Árið 2022 breyttist umfangið verulega þegar hópurinn tók að sér að manna alla jólasveina á laugardögum í Jólaþorpinu.
Árið 2023 tók Askasleikir svo að sér að manna jólasveinana þar allan opnunartímann og hefur gert það síðan.
Jólaþorpið varð þannig eins konar æfingasvæði, heimavöllur og stökkpallur í senn. Þar hafa fjölmargir sveinar komið við sögu. Sumir hafa aðeins verið með um stund en aðrir hafa fylgt verkefninu frá upphafi.
Grýla er sömuleiðis áfram hluti af fjölskyldunni. Tvær konur til viðbótar koma að hlutverkinu eftir þörfum, bæði þegar stærri verkefni kalla á Grýlu og þegar leysa þarf gömlu Grýlu af.
Frá Jólaþorpinu inn á heimilin
Jólaþorpið var upphafið en verkefnin fóru fljótt að berast annars staðar frá.
Heimsóknir á heimili bættust við og síðan heimsóknir á aðfangadag.
Þaðan breikkaði starfsemin nær sjálfkrafa.
Jólaböll, skólar, leikskólar, vinnustaðir, verslanir, jólahlaðborð, myndatökur, auglýsingar, sviðsframkomur og ýmis sérverkefni bættust við eftir því sem tækifærin komu.
Sum verkefni hafa verið hefðbundin. Önnur síður.
Askasleikir og fjölskyldan hafa þannig þurft að geta verið hvort tveggja: kunnuglegir íslenskir jólasveinar og sveigjanlegir skemmtikraftar sem geta brugðist við því sem gerist hverju sinni.
Það hefur alltaf verið mikilvægara að skapa lifandi samskipti en að fara eftir fyrirfram skrifuðu handriti.
Frá einum sveini í heilt teymi
Starfsemin hefur vaxið töluvert frá því einn maður setti upp gamalt skegg árið 2020.
Í dag koma ellefu manns með einum eða öðrum hætti að Askasleiki.
Stærsti hluti hópsins bregður sér í hlutverk sem jólasveinar eða Grýla. En þar fyrir utan þarf fólk sem sér um allt það sem gesturinn sér síður: undirbúning, búninga, skipulag, bókanir, samskipti og allt hitt sem þarf að vera tilbúið áður en bankað er upp á.
Umfangið sést meðal annars á aðfangadegi.
Jólasveinaþjónusta Askasleikis hefur farið í yfir 180 heimsóknir á aðfangadag síðustu ár og verður komið yfir 200 heimsóknir jólin 2026.
Við þetta bætist Jólaþorpið, þar sem mönnunin ein og sér getur hlaupið á um 80–120 klukkustundum á hverju ári, auk allra annarra heimsókna og verkefna desembermánaðar.
Þegar öllu er safnað saman hlaupa heimsóknir, verkefni og vinnustundir yfir árin á þúsundum.
Það er töluverð breyting frá því að vera beðinn um að hlaupa í skarðið eitt síðdegið árið 2020.
Að halda í gamla tímann og skapa eitthvað nýtt
Það er auðvelt að tala um hefðir eins og þær eigi að vera óbreyttar.
Við höfum aldrei séð það þannig.
Það sem okkur finnst skemmtilegt við hefðir er að taka það sem okkur þykir vænt um úr fortíðinni og leyfa því að lifa í samtímanum.
Þess vegna geta Askasleikir og fjölskyldan birst í rauðum jólasveinahúfum og hvítu skeggi en samt verið í lopapeysum, ullarsokkum og handprjónuðum vettlingum.
Þess vegna geta þeir kunnað gömlu jólasveinakvæðin en jafnframt birst á Instagram, YouTube og TikTok.
Og þess vegna getur jólasveinninn sem bankar upp á hjá barni í dag átt rætur að rekja til gamals skeggs á háalofti, Þorláksmessuboðs hjá afa og ömmu og trúðs sem kom fram í sunnudagaskóla árið 1998.
Við viljum ekki endurgera gamla tíma nákvæmlega.
Við viljum bera það besta úr þeim áfram.
Jólasveinarnir halda hefðinni áfram
Það sem hófst sem óvænt beiðni um að leysa einn jólasvein af hefur orðið að ævintýri sem enginn sá alveg fyrir.
Það hefði ekki gerst án fólksins sem hefur tekið þátt í því.
Sagan hefst á mömmu og pabba. Þau kenndu Einari líklega meira um skemmtun en þau gerðu sér grein fyrir þegar þau skiptust á að bregða sér í hlutverk Tralla trúðs í sunnudagaskólanum á Húsavík. Þau hafa síðan stutt við nánast allt sem honum hefur dottið í hug að taka sér fyrir hendur, lagt hönd á plóg þegar þess hefur þurft og verið ómetanlegar fyrirmyndir alla tíð. Margt af því sem Askasleikir stendur fyrir í dag á rætur sínar að rekja þangað.
Jóel, bróðir Einars, hefur sömuleiðis verið stór hluti af ævintýrinu. Hann hefur staðið flestar vaktir allra, tekið þátt í uppbyggingunni og er sá sem hægt er að treysta á þegar mikið liggur við. Hann mætir, leysir verkefnin og er alltaf reiðubúinn til að leggja sitt af mörkum, hvort sem verkefnið er stórt, lítið, skemmtilegt eða einfaldlega þarf að klára það. Það er erfitt að hugsa sér áreiðanlegri samferðamann í rekstrinum.
Svo er það allt fólkið sem hefur orðið hluti af jólasveinafjölskyldunni. Jólasveinarnir sem hafa mætt ár eftir ár. Grýlurnar. Þau sem hafa prjónað, undirbúið, skipulagt og svarað bókunum. Fólkið sem hefur hent fram hugmynd í sundlaug, arfleitt af lopapeysu, tekið ljósmynd eða einfaldlega sagt já þegar spurt var hvort það vildi taka þátt.
Hver og einn hefur lagt eitthvað til.
Og það hefði allra síst gerst án þeirra sem hafa boðið okkur inn.
Á heimili sín, jólaböll, vinnustaði, skóla, verslanir og viðburði. Sumir hafa gert það einu sinni. Aðrir aftur og aftur.
Það er sérstök staða að fá að koma inn í jól annarra. Oft aðeins í nokkrar mínútur, stundum í heila dagskrá, en vonandi nógu lengi til að skilja eftir góða minningu.
Við erum þakklát fyrir traustið, fólkið sem hefur komið að þessu með okkur og frelsið til að fá að skapa eitthvað sem okkur þykir vænt um. Við berum virðingu fyrir því sem kom á undan og hlökkum til þess sem enn á eftir að verða til.
Sagan okkar hófst árið 1998 og jólasveinarnir halda hefðinni áfram.
Við vitum ekki alveg hvernig næsti kafli lítur út.
En við hlökkum til að skrifa hann.
