top of page

Í Betlehem er barn oss fætt

F  C  F      C    F

Í Betlehem er barn oss fætt,

F      C7   F

barn oss fætt.
Bb  A/C# A+   Dm      Bb

Því fagni gjörvöll Adamsætt.
Bb F/A C F F/A F/C C F

Hallelúja.          Hallelúja.



Einfölduð útgáfa

F

Í Betlehem er barn oss fætt,

F       C    F

barn oss fætt.
     A                   Dm      Bb

Því fagni gjörvöll Adamsætt.
F      C F         F     C F

Hallelúja.          Hallelúja.


Það barn oss fæddi fátæk mær.

fátæk mær.
Hann er þó dýrðar Drottinn skær.
Hallelúja. Hallelúja.


Hann var í jötu lagður lágt,

lagður lágt.
En ríkir þó á himnum hátt.
Hallelúja. Hallelúja.


Hann vegsömuðu vitringar,

vitringar.
Hann tigna himins herskarar.
Hallelúja. Hallelúja.


Hann boðar frelsi' og frið á jörð,

frið á jörð.
Og blessun Drottins barnahjörð.
Hallelúja. Hallelúja.


Vér undir tökum englasöng,

englasöng.
Og nú finst oss ei nóttin löng.
Hallelúja. Hallelúja.


Vér fögnum komu frelsarans,

frelsarans.
Vér erum systkin orðin hans.
Hallelúja. Hallelúja.


Hvert fátækt hreysi höll nú er,

höll nú er.
Því Guð er sjálfur gestur hér.
Hallelúja. Hallelúja.


Í myrkrum ljómar lífsins sól,

lífsins sól.
Þér, Guð sé lof fyrir gleðileg jól.
Hallelúja. Hallelúja.


Lag: Þýskt þjóðlag

Texti: Latneskur sálmur / N.F.S. Grundtvig

Íslensk þýðing: Valdimar Briem

bottom of page