top of page
Gratíneraðar kartöflur
Hráefni
4 bökunarkartöflur
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 peli rjómi
Salt og pipar
Rifinn ostur
Aðferð
Skerið kartöflurnar í um ½ cm þykkar sneiðar.
Saxið laukinn og hvítlaukinn smátt.
Smyrjið eldfast mót með olíu og raðið kartöflum, lauk og hvítlauk í 2–3 lög.
Hellið rjómanum yfir, kryddið með salti og pipar og dreifið rifnum osti yfir.
Bakið við 180°C í 40–50 mínútur.
Ef osturinn þarf meiri lit má hækka hitann undir lokin.
bottom of page
