top of page

Heitt súkkulaði

Fyrir fjóra.


Hráefni
  • 1 lítri nýmjólk

  • 150 g suðusúkkulaði

  • ½ tsk vanilludropar

  • 1–2 tsk sykur, ef vill


Meðlæti
  • 2 dl rjómi, þeyttur

  • Rifið súkkulaði, ef vill


Aðferð
  1. Saxið súkkulaðið.


  2. Setjið það í pott með 2 dl af mjólkinni.


  3. Hitið við vægan hita og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað.


  4. Bætið afganginum af mjólkinni smám saman við og hrærið vel.


  5. Hitið þar til súkkulaðið er heitt og gufar úr því. Látið ekki bullsjóða.


  6. Bætið vanillu við. Smakkið og sætið eftir þörfum.


  7. Hellið í bolla og berið fram með þeyttum rjóma og rifnu súkkulaði.


Gott að vita

Fyrir mildara súkkulaði má nota 100 g af suðusúkkulaði í stað 150 g. Hrærið í pottinum rétt áður en hellt er í bollana.

bottom of page