top of page
Klassískur rjómaís
Hráefni
½ l rjómi
4 eggjarauður
4 msk flórsykur
1 tsk vanilludropar
Aðferð
Þeytið rjómann með 1 msk af flórsykri þar til hann verður mjúkur og loftkenndur.
Setjið eggjarauður, afganginn af flórsykrinum og vanilludropana í aðra skál og hrærið vel saman.
Blandið rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju.
Setjið blönduna í mót eða ílát og frystið.
Gott er að hræra í ísnum nokkrum sinnum á meðan hann er að frjósa svo áferðin verði jafnari.
Framreiðsla
Berið ísinn fram með ferskum berjum, heitri súkkulaðisósu, karamellusósu eða öðrum jólalegum eftirréttum.
bottom of page
