top of page
Loftkökur
Hráefni
500 g flórsykur
2¾ msk kakóduft
1 tsk hjartarsalt
1 egg
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
Sigtið flórsykur og kakó í skál. Blandið hjartarsaltinu saman við.
Bætið egginu út í og hnoðið þar til deigið er samfellt.
Mótið deigið í lengjur. Til að fá hefðbundna áferð má nota hakkavél með loftkökumóti, sem gefur sléttan botn og riflað yfirborð. Einnig má rúlla mjóar lengjur með höndunum.
Skerið lengjurnar í um 5 cm búta og raðið á plötuna með bili á milli.
Bakið í miðjum ofni í um 10–12 mínútur. Kökurnar eiga að lyftast við baksturinn.
Leyfið kökunum að kólna áður en þær eru settar í lokað kökubox.
bottom of page
