top of page
Skyrterta með berjum
Hráefni
Botn
150 g hafrakex með súkkulaði
150 g makkarónukökur
180 g smjör
Fylling
½ l rjómi
2 heil egg
2 eggjarauður
250 g flórsykur
250 g skyr
4–5 matarlímsblöð
Skvetta af líkjör
Aðferð
Botn
Myljið hafrakexið og makkarónukökurnar.
Bræðið smjörið og blandið því saman við kexmulninginn.
Þrýstið blöndunni í botninn á bökuformi eða víðri skál.
Fylling
Þeytið saman egg, eggjarauður og flórsykur.
Þeytið rjómann í annarri skál.
Leysið matarlímsblöðin upp í líkjörnum.
Hrærið skyrið saman við eggjablönduna og blandið rjómanum síðan varlega út í.
Setjið fyllinguna yfir botninn og kælið vel.
Framreiðsla
Berið fram með þeyttum rjóma og bláberjum.
bottom of page
