top of page
Súkkulaðitrufflur
Um 20–25 litlir molar.
Hráefni
200 g dökkt súkkulaði, um 55–65% kakó
1 dl rjómi
20 g smjör
Kakó til að velta upp úr
Aðferð
Saxið súkkulaðið fínt og setjið í hitaþolna skál.
Hitið rjómann að suðumarki og takið af hitanum.
Hellið rjómanum yfir súkkulaðið og látið standa í tvær mínútur.
Hrærið rólega frá miðju skálarinnar þar til blandan verður slétt.
Bætið smjörinu við í litlum bitum og hrærið þar til það er bráðið.
Setjið lok eða filmu yfir og kælið í 3–4 klukkustundir, eða þar til blandan er nógu stíf til að móta.
Takið litla skammta með teskeið og rúllið í kúlur. Ef blandan mýkist of mikið er hún kæld aftur.
Veltið kúlunum upp úr kakói og raðið í lítil konfektform.
Geymsla
Geymið í lokuðu íláti í kæli og notið innan viku. Takið fram um tíu mínútum fyrir framreiðslu.
bottom of page
