top of page

Þurfa allir að vera glaðir um jólin?

„Nú má enginn vera leiður, það eru að koma jól.“ Þetta er yfirleitt sagt af hlýju. Okkur langar að gleðja einhvern og minna á það góða sem er fram undan. En fyrir þann sem er leiður getur setningin verið erfið. Tilfinningin hverfur ekki endilega við áminninguna og nú bætist kannski við sú hugsun að hún eigi ekki heima þarna.


Það er engin ein rétt leið til að líða um jólin. Sumir byrja að hlakka til löngu áður en desember kemur. Aðrir njóta einstakra stunda en eru ekkert sérstaklega jólalegir þar á milli. Enn aðrir kvíða hátíðinni eða vilja helst að hún líði hjá. Sama manneskja getur líka fundið fyrir öllu þessu á mismunandi tímum.


Jólin geta minnt okkur á það sem hefur breyst. Stóll við borðið er auður. Börnin eru á öðru heimili þetta árið. Fjölskyldan hittist ekki lengur eins og áður eða samband sem við treystum á er farið. Það getur líka verið mikið að gera og lítið svigrúm. Útgjöld, ferðalög, vinnutarnir og væntingar annarra geta tekið pláss frá tilhlökkuninni. Fyrir sumum er það léttir þegar loksins kemur venjulegur dagur aftur.


Við þurfum ekki að vita nákvæmlega af hverju einhver er dapur til að sýna tillitssemi. Stundum nægir að hlusta án þess að flýta sér að finna björtu hliðina. Að segja: „Ég skil að þú saknir hennar,“ eða spyrja: „Viltu segja mér frá því?“ Það má líka bjóða félagsskap án þess að krefjast jólagleði í staðinn. Fólk má koma í mat þótt það sé þreytt. Það má sitja rólegt í heimsókn og það má fara fyrr heim.


Sama tillitssemi á við um börn. Barn getur hlakkað til gjafanna og samt saknað foreldris sem er annars staðar. Það getur orðið yfirbugað í fjölmennu boði eða viljað fá pásu frá látunum. Það þarf ekki að knúsa jólasvein, syngja fyrir gesti eða brosa á hverri mynd til að fá að njóta jólanna á sínum forsendum.


Stundum þarf að breyta áætluninni. Sleppa einu boði, hafa einfaldari mat eða taka frá tíma þar sem ekkert stendur til. Það má líka spyrja heimilisfólkið hvað það vill helst halda í og hvað megi falla niður.


Þótt sorg eða söknuður sé til staðar getur samt komið góð stund. Hlátur við matarborðið útilokar ekki að við söknum einhvers. Og ef gleðin lætur bíða eftir sér þarf ekki að líta á hátíðina sem misheppnaða. Jólin mega rúma fleiri tilfinningar en gleði. Þau geta orðið hlýrri þegar fólk fær að mæta eins og því líður, án þess að þurfa fyrst að setja upp hátíðarsvip.

bottom of page