top of page

Uppstúfur

Hráefni
  • 1 kg soðnar kartöflur

  • 75 g smjör

  • 75 g hveiti

  • 1 l mjólk

  • 1 msk sykur

  • Salt og pipar

  • Örlítið rifið múskat


Aðferð
  1. Bræðið smjörið við vægan hita og hrærið hveitinu saman við.


  2. Látið jafninginn eldast í um 2 mínútur svo hveitibragðið mildist.


  3. Hellið mjólkinni rólega út í og hrærið stöðugt þar til sósan verður þykk og slétt.


  4. Bragðbætið með sykri, salti, pipar og múskati.


  5. Skerið soðnar kartöflur í bita, bætið þeim út í og látið malla í nokkrar mínútur.

bottom of page